Hvert örstutt Spor Songtext - Svavar Knútur

Hvert örstutt Spor - Svavar Knútur

Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
við sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.

Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn,
er orðin hljómlaus utangátta og tóm,
hjá undrinu að heyra þennan róm,

Hjá undri því, að líta lítinn fót,
í litlum skóm, og vita að heimsins grjót,
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir menn,

Já vita eitthvað anda hér á jörð,
er ofar standi minni þakkargjörð,
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt


Video: Hvert örstutt Spor von Svavar Knútur

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Hvert örstutt Spor von Svavar Knútur gefällt:

Kommentare