Ástardúett Songtext - Stuðmenn

Ástardúett - Stuðmenn

Ég er dáinn úr ást, þótt hjartað dæli blóði.
Ég heyri engan mun, á hávaða eða hljóði.
Ég er gagntekinn, altekinn, heltekinn, tekinn í framan.
Ég er andvana, magnvana, máttvana þegar ég sé
Hörpu Sjöfn Hermundardóttur,
Hörpu Sjöfn Hermundardóttur
Hörpu Sjöfn - Harpa Sjöfn.
Sterkur og stór, stinnur eins og Sokki
sem Runki fór á, ríðandi á brokki.
Ég finn fyrir skjálfta í hnjánum,
fiðringi í tánum með honum,
ég er andvana, magnvana, máttvana þegar ég sé
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Kristinn stuð Styrkárson Proppé
Kristinn stuð - Stinni stuð.
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð
stórfínt alveg til fyrirmyndar
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð
stórfínt alveg til fyrirmyndar

Hvar sem þú ert, til sjávar eða sveita,
þú efalaust ert, að ástinni að leita.
Hætt' ekki, gefst' ekki upp þó móti þér blási,
við leituðum lengi uns fundum hvort annað.
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Harpa Sjöfn Hermundardóttir
Kristinn stuð, Harpa Sjöfn.
Samband þeirra er - frá öllum hliðum séð
stórfínt alveg til fyrirmyndar
Samband þeirra er - frá öllum hliðum séð
stórfínt alveg til fyrirmyndar
Samband þeirra er - frá öllum hliðum séð
stórfínt alveg til fyrirmyndar
Samband þeirra er - frá öllum hliðum séð
stórfínt


Video: Ástardúett von Stuðmenn

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Ástardúett von Stuðmenn gefällt:

Kommentare