Kvaðning Songtext - Skálmöld

Kvaðning - Skálmöld

Kvaðning
Ligg ég eftir langa drauma
Liggur stirður, hugur sljór
Hatrið finn ég kröftugt krauma
Kreistir hefnd ef fyrrum sór
Heiðin býr að hættum blindum
Horfi ég mót svörtum tindum
Hel býr þar í mörgum myndum:
Myrkur, kuldi ís og snjór
Heljarsál af himnum steyptist
Hafði af mér bú og menn
Hatrið inn í hugann geyptist
Heldur mér á lífi enn
Fleyjum þínum feigðin grandi
Finn ég þig á sjó og landi
Kem ég til þín forni fjandi
Fundir okkar nálgast senn
Morgunsól á miðri heiði
Minningarnar sækja á
Mikil er og römm sú reiði
Rífur sárin hatrið þá
Eitt sinn átti fljóð að finna
Sem fallig gætti barna minna
En núna hef ég verk að vinna:
Vega blóðga, stinga' og flá
Höldum nú á feigðarinnar fund
Þetta ferðalag mun telja okkar daga
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar
Höldum nú á feigðarinnar fund
Þetta ferðalag er köllun vor og saga
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá


Video: Kvaðning von Skálmöld

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Kvaðning von Skálmöld gefällt:

Kommentare