Hjá þér Songtext - Sálin hans Jóns míns

Hjá þér - Sálin hans Jóns míns

Þegar kviknar á deginum
Og í lífinu ljós
þegar myrkrið hörfar frá mér
þá er eitthvað sem hrífur mig
Líkt og útsprungin rós
Þá vil ég vera hjá þér

Þegar geng ég í sólinni
Mitt um hábjartan dag
Litafegurð blasir við mér
þegar heimurinn heillar mig
Líkt og töfrandi lag
þá vil ég vera hjá þér

Ég vil bæði lif'og vona
ég vil brenna upp af ást
ég vil lifa með þér svona
ég vil gleðjast eða þjást
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér

Meðan skuggarnir stækka og
ýta húminu að
Gamall máninn bærir á sér
Vil ég eiga andartak
Inni á rólegum stað
þá vil ég vera hjá þér

Ég vil bæði lif'og vona
ég vil brenna upp af ást
ég vil lifa með þér svona
ég vil gleðjast eða þjást
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér

Ooh, meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér

Þegar slokknar á deginum
Yfirþyrmandi nótt
Stormar fyrir stjarnanna her
En það bítur mig ekkert á
Og ég sef vært og rótt
Ef þú vilt vera hjá mér
Þá vil ég vera hjá þér


Video: Hjá þér von Sálin hans Jóns míns

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Hjá þér von Sálin hans Jóns míns gefällt:

Kommentare