Fannfergi hugans Songtext - Sálin hans Jóns míns

Fannfergi hugans - Sálin hans Jóns míns

Hún er silki og stál.
Hún er stórsjór og bál.
Hún er allt mitt í hendi. Hún er hjarta míns mál.

Þegar heimur og drótt
höfðu loks um sig hljótt,
í fannfergi hugans ég fann han'í nótt.

Það var dimmt, það var dögg,
og í dreyranum lögg.
En ég fann hvernig hjartað sló högg eftir högg.
Þar sem áður var tóm,
eru nú aðeins blóm.
Í kuldanum ástin, hún kvað upp sinn dóm.

Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er
hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér!

Það var hvasst úfinn sær.
Það var nýfallinn snær.
Þó var innra með mér aðeins andvari vær.
Já, ég vissi sem var
og ég skynjaði þar
í mjöllinni hitann sem með sér hún bar.

Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er,
hversu hreint ótrúleg,
hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.

Dag eftir dag eftir dag
eru óteljandi sálir sárar víst.
Dag eftir dag eftir dag
hverfur sól en síðan styttir upp.
Styttir upp á ný.

— Sóló —

Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er.
Hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.

Nú er dagur á ný,
en í kvöld aftur sný,
ég til fundar við þig þar í rökkrinu því.
Þegar heimur og drótt,
höfðu loks um sig hljótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.


Video: Fannfergi hugans von Sálin hans Jóns míns

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Fannfergi hugans von Sálin hans Jóns míns gefällt:

Kommentare