Augnabliki áður en ég fæddist
Var ég færður í tilsniðna flík
Til að tryggja hvaða búningi ég klæddist
Utandyra í Reykjavík
Augnabliki áður en ég fæddist
Var mér fært í hendur þéttskrifað blað
Veit ekki hvaða villa í það slæddist
Sem að færði til mín ákveðna stað
Er öllu er á rönguna snúið
öllu virðist vera á botninn hvolft
Og allt sem var til bara búið
Og gufað upp í loft
Vill einhver skýra út hvað er að gerast?
Hvað er að eiga sér stað?
Segja mér við hvern er að sakast
Svo ég viti hvað er að?
Augnabliki eftir að þú andast
Og finnur loksins rétta flöt
þá fyrst fer nú málið allt að vandast
því þá er allt of seint að skipta um föt
Og öllu er á rönguna snúið
öllu virðist vera á botninn hvolft
Og allt sem var til bara búið
Og gufað upp í loft
Vill einhver skýra út hvað er að gerast?
Hvað er að eiga sér stað?
Segja mér við hvern er að sakast
Svo ég viti hvað er að
Vill einhver skýra út hvað er að gerast?
Hvað er að eiga sér stað?
Segja mér við hvern er að sakast
Svo ég viti hvað er að
Zeige deinen Freunden, dass dir Sökudólgur óskast von Nýdönsk gefällt:
Kommentare