Hún lá í þykkum reyk
í leit að týndgleymdri veröld
þar sem hún eitt sinn bjó
Græn, græn minning um hárið
Hún sem strauk lit yfir þurrar varir
Öll, öll hugsun að henni
þá heyrist hennar leitandi óp
Þú manst allt ljósið sem við drukkum saman, einar saman
Berdreymin þú fannst allt gullið sem við
Sögðum aldrei neinum
Heil veröld, snúðu aftur, vertu hjá mér, með mér
Komst nær, hún fann lyktina, fann lyktina af
Hlátri, þar birtist veröldin
Hún brosti breiðar en ópið og hló hærra en lyktin
Hún fann heiminn sem gleymdist, hún fann mig
Hún fann mig
Þú manst allt ljósið sem við drukkum saman
Einar saman
Berdreymin þú fannst allt gullið sem við
Sögðum aldrei neinum
Heil veröld, snúðu aftur, vertu hjá mér, með mér
Zeige deinen Freunden, dass dir Geimþrá von Mammút gefällt:
Kommentare