Til þín Songtext - Hjálmar

Til þín - Hjálmar

Hvort fann ég, Þig eða tímann
þarflaust að líma'nn
og ég held ég hafi aldrei áður komið mér í slíkan lás.

Því ég ann þér? Megi þér glíman
giskin við símann
verða hugrenningi í góðu eða hljóði svo þú verðir hás.

En ég veit að þó við séum eins á litinn
er veröld okkar sundurslitin
á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig.
Og ég veit að hjarta mitt það er í miðið,
verulega sárt og sviðið,
og klofið eins og kilja,
þó ég kannski myndi vilja
að mér láist að skilja þig.

Hvort finn ég, þig eða tíma
til þess að glíma
við heimskulegar aðstæður sem enda þar til verð ég lens.

Hef ég nær þér nokkru sinn verið?
Og hvað sem þér gerið
þá er höfuðið að veði þótt þú fáir alltaf annan séns.

En ég veit að þó við séum eins á litinn
er veröld okkar sundurslitin
á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig.
Og ég veit að ennþá mun ég þurfa að bíða
strjúka enni mitt og svíða
og þó að ég sé hjálmur
þá er þessi litli sálmur alveg sérstaklega til þín.


Video: Til þín von Hjálmar

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Til þín von Hjálmar gefällt:

Kommentare