Samhygð Songtext - Hjálmar

Samhygð - Hjálmar

Á bernskuskeiði braustu
Úr búðarglugga rúðu
Í gáska einskis gættir
Og greipst þér kerti og spil

Dóma harða hlaustu
Því harla fáir trúðu
Að eitthvað gott þú ættir
Í eðli þínu til

Kornið verður köggull
Í kjafti níðs og hroka
Frá rógsins lygnu lindum
Lækir fikra sig

Þú ert blóraböggull
Við bætum í þinn poka
Okkar eigin syndum
Og eyðileggjum þig

Við erum annars góðir
Og ætíð stoltir verðum
Þínum glæp frá gleymsku
Og glötun borgið er

Þú niðurbrotni bróðir
Sem berð á veikum herðum
Hatur vort og heimsku
Ég hræki á eftir þér


Video: Samhygð von Hjálmar

Teilen

Zeige deinen Freunden, dass dir Samhygð von Hjálmar gefällt:

Kommentare